mánudagur, 9. september 2013

Eggaldin Lasagna

Skammtar:12
Undirbún..:30 minutes
Heildar tími:45 minutes
Næringar Upplýsingar Per Skammt:
Netto Kolvetni:
Trefjar:
Protein:
Fita:
Kaloríur:
5.4 gr
3.5 gr
24 gr
26 gr
358

Innihald:
1 1/2 kíló eggaldin (um það bil 2 miðlungs)
1 kíló nautahakk
1 bolli kryddaður enginn tómat sósu (ósykruð)
4 stykki miðlungs stórir sveppir (stilkar fjarlægðir)
1/4 bolli Virgin ólífuolía
1/8 tsk salt
1/8 Teskeið svartur pipar
2 bollar ostur
100gr fryst hakkað spínat, (þíða og kreista úr vatn eins og hægt er)
2 stór egg, örlítið þeytt
1/4 bolli rifinn parmesan ostur
100gr mozzarella ostur, sneiddur

Leiðbeiningar:

Steikt eggaldin koma í stað lasagne pasta.
Skerið niður eggaldin, en láta hýði vera á, sneið eftir endilöngu 1cm til 2cm þykkar. Söltum hvert lag. Látið standa í vaskinum eða yfir skál í 15 mínútur til að tæma bitran safa úr.
Á sama tíma skal hita pönnu miðlungs heita, Steikja nautakjötið, brjóta það upp með tré skeið þar til það er brúnað í um 6 mínútur. Taka skal allan vökva úr pönnunni og hræra út í. Fjarlægja af helluni, og setjið til hliðar til að kólna.
Pensla sveppi létt með ólífuolíu, kryddið með salti og pipar. brúnið sveppina í um 4min. 
Hitið pönnuna, pennslið olive olíu á eggaldin sneiðarnar og steikið báðar hliðar.
Blandið spínati, eggjum og parmesan osti í blandara, blandið vel og bætið við pipar.
Því næst blöndum við hakkinu út í og hrærum saman.
Það sem við gerum svo er að setja saman lasgane eins við erum vön nema við setjum eggaldin sneiðar í stað pasta. Þannig að við setjum hakk blönduna svo eggaldin svo hakk blöndu og svo framvegis, bætum svo ostinum ofan á.
Bakið um 20 mínútur, þar til ostur er brættur og sósa bublar. Látið kólna örlítið áður en þið berið fram.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli